Fréttir
Sunnudaginn 29. janúar kl. 14 verður opnuð sýningin Þetta vilja börnin sjá! í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þetta vilja börnin sjá! er sýning á myndskreytingum úr nýútkomnum íslenskum barnbókum og hefur slík sýning verið haldin árlega í Gerðubergi í tíu ár. Þátttakendur á sýningunni keppa jafnframt um íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm. Við opnun sýningarinnar á sunnudaginn verður tilkynnt um hver vinnur Dimmalimm-verðlaunin fyrir bestu myndskreytingarnar í íslenskri barnabók árið 2011. Þær ...
Fjórar nýjar bækur hafa verið endurprentaðar um félagana Emmu og Tuma. Bækurnar um Emmu og Tuma hafa notið gríðarlegra vinsælda hjá yngstu kynslóðinni frá því um miðjan áttunda áratuginn og eru löngu orðnar sígildar. Í þessum bókum kynnast Emma og Tuma ýmsu skemmtilegu; Emma fer til tannlæknis og í leikskólann á meðan Tumi fer til læknis og prófar að baka köku. Dásamlegar bækur sem eru alveg mátulegar fyrir huggulega lestrarstund með börnunum.
Í gær voru Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Guðrún Eva Mínervudóttir hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Allt með kossi vekur sem kom út fyrir jólin. Þriggja manna lokadómnefnd, skipuð þeim Þorgerði Jennýjardóttur Einarsdóttir, Árna Matthíassyni og Þorsteini Gunnarssyni, valdi verkin úr hópi tíu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember síðastliðnum, fimm í flokki fagurbókmennta og fimm í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Allt með kossi ...
Bókin 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp eftir Hallgrím Helgason hefur verið gefin út af Amazon og fæst nú á sölusíðunni Amazon.com. Enska útgáfan er þar fáanleg í kilju og á rafrænu kyndilformi eins og má sjá hér. Bókin ber enska titilinn The hitman's guide to housecleaning og hefur nú þegar fengið frábæra dóma á sölusíðunni. Hallgrímur er lofaður sem beittur og írónískur ...
Síðustu vikuna hafa komið út þrjár bækur sem allir stjórnendur í fyrirtækjum eða stofnunum ætti að eiga. Bækurnar Samskiptafærni og Skipulagsfærni eftir þá Hauk Inga og Helga Þór eru bækur sem, eins og titill bókanna gefur til kynna, hjálpa stjórnendum að bæta samskipti sín og skipulag. Bækurnar koma út í framhaldi af bókunum Leiðtogafærni og Stefnumótunarfærni sem komu út síðasta haust. Þessar fjórar bækur byggja á náminu Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun sem ...

Nýjar bækur
Tilboð: 790 kr.
Verð áður: 990 kr.
Kaupa

Tilboð: 790 kr.
Verð áður: 990 kr.
Kaupa

Tilboð: 3.190 kr.
Verð áður: 3.990 kr.
Kaupa

Tilboð: 4.190 kr.
Verð áður: 4.990 kr.
Kaupa

Tilboð: 4.190 kr.
Verð áður: 4.990 kr.
Kaupa

Nýjar bækur | Spennusögur | Barnabækur | Skáldsögur | Ljóð
karfan mín
Leita